26.08.2021			
	
	Afrit af húsaleigusamningum íbúa og staðfesting á skólavist fór í póst í dag og ættu að berast næstu daga á lögheimili íbúa. Ef íbúi er undir lögaldri er sótt um húsnæðisbætur til skrifstofu viðkomandi sveitarfélags þar sem íbúinn á lögheimili. Ef íbúi er orðinn lögráða sækir viðkomandi um rafrænt á www.husbot.is
Hvetjum íbúa og forráðamenn að sækja um sem fyrst.
 
	
		
		
		
			
					26.08.2021			
	
	Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00.
Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00.
Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611.
 
	
		
		
		
			
					23.08.2021			
	
	Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00.
Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00.
Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611.
 
	
		
		
		
			
					20.08.2021			
	
	Bendum íbúum á að skrá sig þegar þau fara af heimavist í sólarhring eða meira, s.s. í helgarfrí. Mikilvægt er að vitað sé hverjir eru á heimavist hverju sinni ef t.d. forráðamaður þarf að ná í íbúa eða  að rýma þyrfti húsnæðið. 
 
	
		
		
			
					19.08.2021			
	
	Heimavistin verður opin fyrir innritun sunnudaginn 22. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og mánudaginn 23. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00.
Hlökkum til að sjá ykkur á heimavistinni.
 
	
		
		
			
					19.08.2021			
	
	Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í vetur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00  Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611.
 
	
		
		
			
					18.08.2021			
	
	Bendum nýjum íbúum á að myndataka fyrir augnskanna í mötuneytinu stendur nú yfir milli kl. 14 og 17 alla virka daga í mötuneytinu.
 
	
		
		
		
			
					18.08.2021			
	
	Minnum íbúa og forráðamenn á að það er mikilvægt að láta starfsmann á vakt vita ef íbúar eru lasnir og eins ef þeir eru á leið í sýnatöku vegna COVID.  Vaktsíminn er 899 1602 eða 455 1602.
Starfsfólk getur litið við hjá íbúum, komið með mat, hitamæli o.þ.h.
 
	
		
		
		
			
					14.08.2021			
	
	Minnnum íbúa á að grímuskylda er á heimavist utan síns herbergis og virða þarf fjarlægðarmörk !
Einnig þurfa allir íbúar að sýna við innritun að þeir séu með rakningarappið í símanum.
 
	
		
		
		
			
					13.08.2021			
	
	Heimavistin verður opin fyrir innritun mánudaginn16. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og þriðjudaginn 17. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00.
Hlökkum til að sjá ykkur  á heimavistinni