Húsaleigusamningar MA íbúa farnir í póst

Húsaleigusamningar MA íbúa eru farnir í póst og ættu því að berast íbúum í næstu viku. Reynt var að verða við óskum íbúa um herbergi eins og hægt var.

Hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa á heimavist

Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa sem eru að flyta á heimavistina. Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér: Handspritt og handsápu til að hafa á herbergi Fjölnota grímur eða einnota til skiptanna Sæng og kodda Sængurver, koddaver og lök Handklæði Rúmteppi ef vill Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott Herðatré Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum. Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Athugið að hlíðarlak þarf að vera á rúmdýnu og svo lak frá íbúa. Íbúar fá þvottanet með tuskum og svampi. Íbúar fá þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig og sótthreinsa þarf áhöld fyrir og eftir notkun. Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. Aðeins má hengja upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist. Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér. Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.

Húsaleigusamningar VMA íbúa farnir í póst

Húsaleigusamningar VMA íbúa eru farnir í póst og ættu því að berast íbúum næstu daga. Reynt var að verða við óskum íbúa um herbergi eins og hægt var.

Móttaka íbúa VMA á heimavist

Undirbúum móttöku íbúa VMA og MA Við höfum tekið til starfa eftir sumarfrí og erum byrjuð að undirbúa komu íbúa. Móttaka íbúa Verkmenntaskólans á Akureyri er mánudaginn 16. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og þriðjudaginn 17. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00.  Kennsla hefst í VMA samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 18. ágúst. Íbúar ættu að fá samninga og önnur gögn frá okkur í pósti eftir helgina. Athugið að móttakan er miðuð við gildandi sóttvarnartakmarkanir. Ef breyting verður á verður það auglýst sérstaklega. Móttaka íbúa í MA verður sunnudaginn 22. ágúst og mánudaginn 23. ágúst. Samningar ættu að berast vikunni áður.

Svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2021-2022

Svör við umsóknum voru send út með tölvupósti 25.júní. Það er enn opið fyrir umsóknir næsta vetur. Umsækjendur sem sækja um eftir 23. júní fá staðfestingu í ágúst eftir sumarleyfi. Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa eða forráðamanna (ólögráða íbúa) í innheimtukerfi Arion banka. Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 26. júlí. Ef krafa er ekki greidd á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni. Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst. Breytingar á umsókn s.s. varðandi tegund af herbergi eða herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst á netfangið maria@heimavist.is Leigusamningar og önnur gögn verða sendir í pósti viku fyrir upphaf skóla. Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komuna á heimavistina. Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina.

Brautskráning frá Menntaskólanum á Akureyri

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Menntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Laus pláss á heimavistinni næsta skólaár

Þó að umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár sé liðinn þá eru einhver pláss laus. Hægt er að sækja um hér á heimasíðunni.

Umsóknarfrestur um heimavist næsta skólaár rennur út 10. júní

Minnum á að það er opið fyrir umsóknir næsta skólaár 2021-2022. Umsóknarfrestur er til 10. júní og er sótt um hér á heimasíðunni.

Brautskráning frá Verkmenntaskólanum á Akureyri

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Verkmenntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Opið fyrir umsóknir um heimavist næsta skólaár

Minnum á að það er opið fyrir umsóknir næsta skólaár 2021-2022. Umsóknarfrestur er til 10. júní og er sótt um hér á heimasíðunni.