Svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2015-2016

Hér koma svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2015-2016: Svör við umsóknum fóru í póst 25. júní. Mikill fjöldi umsókna barst og ljóst að einhverjir lenda á biðlista en skólarnir sáu um að forgangsraða inn á vistina. Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa eða forráðamanna (ólögráða íbúa) í innheimtukerfi Arion banka. Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 20. júlí. Ef krafa er ekki greidd á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur teknir inn af biðlista. Tekið verður inn af biðlista í byrjun ágúst. Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst. Breytingar á umsókn s.s. varðandi tegund af herbergi eða herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst á netfangið rosa@heimavist.is Leigusamningar og önnur gögn verða sendir í pósti viku fyrir upphaf skóla. Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komuna á heimavistina. Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina.

Unnið úr umsóknum fyrir skólaárið 2015-2016

Umsóknarfrestur um heimavist næsta skólaár var til 10. júní s.l. og hafa sjaldan fleiri umsóknir borist. Nú er verið að vinna úr umsóknum en hægt er að sjá þær vinnureglur sem hafðar eru til hliðsjónar við úthlutun á leigurými á heimavistinni hér á heimasíðunni. Gert er ráð fyrir að hægt verði að senda umsækjendum bréf í lok vikunnar. Rétt er að vekja athygli á að eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds alls kr. 34.000 er 20. júlí n.k. Verði seðilinn ekki greiddur á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur á biðlista verða teknir inn. Tekið verður inn af biðlista í byrjun ágúst.

Brautskráning í Menntaskólanum á Akureyri í dag

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Menntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Enn hægt að sækja um heimavist - biðlisti

Umsóknarfrestur um heimavist skólaárið 2015-2016 rann út 10. júní s.l. Enn er hægt að sækja um pláss á vistinni en viðkomandi fer sjálfkrafa á biðlista. Gert er ráð fyrir að umsækjendur fái svör við umsóknum í kringum 25. júní.

Opið fyrir umsóknir um heimavist til 10. júní

Umsóknarfrestur um Heimavist MA og VMA fyrir skólaárið 2015-2016 er til miðvikudagsins 10. júní.

Próf í MA - umgengni á próftíma

Nú eru íbúar MA í prófum og þá gilda ákveðnar umgengnisreglur: Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn. Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur. Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 10:00 – 13:00. Drykkur er alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar. Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði. Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð. Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði. Gangi ykkur vel i prófunum og sýnum öll tillitssemi. Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Brautskráning í Verkmenntaskólanum á Akureyri

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Verkmenntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Reglur á próftíma á heimavist

Nú eru íbúar VMA í prófum og þá gilda ákveðnar umgengnisreglur: Próftími hefst föstudaginn 1. maí kl. 16:00. Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn. Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur. Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 10:00 – 13:00. Drykkur er alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar. Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði. Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð. Reglulegum próftíma lýkur 15. maí. Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði. Gangi ykkur vel i prófunum og sýnum öll tillitssemi. Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Gleðilegt sumar

Við óskum íbúum gleðilegs sumars og þökkum ánægjuleg samskipti í vetur. Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Vöfflukaffi á sumardaginn fyrsta í boði Heimavistarráðs

Vegna veðurútlits hefur verið ákveðið að bjóða upp á vöfflukaffi á sumardaginn fyrsta í stað þess að grilla. Heimavistarráð ætlar að baka vöfflur í tilefni dagsins og bjóða íbúum upp á vöfflukaffi frá kl. 15-16.30. Þrátt fyrir veðurútlit þá hvetjum við íbúa til að mæta með bros á vör og í sumarskapi.