04.11.2015
Í tengslum við skólaheimsóknir í MA og VMA komu í gær um 200 nemendur frá fimmtán skólum í nágrannabyggðalögunum í heimsókn. Krakkarnir eru í 9. og 10. bekk fengu kynningu á heimavistinni og var boðið upp á hressingu á setustofunni.
14.10.2015
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á heimavist vorönn 2016.
08.10.2015
Tveir íbúar heimavistar þau Árni Bæring nemandi við Verkmenntaskólann á Akureyri og Jórunn Rögnvaldsdóttir nemandi við Menntaskólann á Akureyri voru viðmælendur í þættinum Sögur af landi á Rás1, þar sem fjallað var um nám í heimabyggð. Hér er hægt að nálgast þáttinn http://ruv.is/frett/nam-i-heimabyggd-eflir-byggdir-landsins
02.10.2015
Nýtt heimavistarráð fyrir skólaárið 2015-2016 hefur tekið til starfa. Hér má sjá fulltrúa þeirra og röðun í embætti:
Formaður - Guðbjörg Helga Aðalsteinsdóttir nemandi við MA.
Varaformaður - Guðbrandur Máni Filippusson nemandi við VMA.
Ritari - Ásdís Birta Árnadóttir nemandi við MA.
Birta Dögg Bessadóttir nemandi við MA.
Margrét Eva Arthúrsdóttir nemandi við VMA.
Nökkvi Freyr Bergsson nemandi við MA.
Sigmar Ingi Njálsson nemandi við VMA.
Starfsfólk Heimavistar óskar þeim til hamingju með nýju embættin og góðs gengis og samstarfs í vetur.
15.09.2015
Óskum eftir íbúum til starfa við þrif o.fl. nokkra tíma á viku á heimavistinni. Nánari upplýsingar fást hjá Rósu Maríu og Þórhildi. Umsóknir með upplýsingum um fullt nafn, kennitölu og símanúmeri sendast á netfangið rosa@heimavist.is fyrir 20. september nk.
14.09.2015
Miðvikudaginn 16. september næstkomandi:
Íbúar á 5. og 6. hæð kl. 18:00 (íbúar 6. hæðar komi á 5. hæð).
Gangafundir fyrir íbúa gömlu vistar verða á Setustofunni sem hér segir:
Miðvikudagur 16. september kl 18:30 íbúar á Baldursheimi, Sökkvabekk og Fensölum.
Miðvikudagur 16. september kl. 19:00 íbúar á Miðgarði, Jötunheimum, Álfheimum og Loftsölum, Ásgarði og Útgarði.
Gangafundir fyrir íbúa nýju vistar verða haldnir sem hér segir:
Fimmtudaginn 17. september næstkomandi:
Íbúar á 1. hæð kl. 18:00
Íbúar á 2. hæð kl. 18:30
Íbúar á 3. hæð kl. 19:00
Íbúar á 4. hæð kl. 19:30
Fundarstaður er á viðkomandi gangi.
Bestu Kveðjur
Starfsfólk heimavistar
30.08.2015
Nú styttist í að Menntaskólinn á Akureyri hefji starfsemi sína og heimavistin opni fyrir íbúum skólans.
Heimavistin verður opnuð fyrir innritun þriðjudaginn 8. september frá klukkan 13:00 til 20 og miðvikudaginn 9. september frá klukkan 08:30 til 18.
Skólasetning Menntakólans á Akureyri verður miðvikudaginn 9. september.
Íbúar fá leigusamninga og önnur gögn send viku fyrir upphaf skóla.
26.08.2015
María Albína Tryggvadóttir hjúkrunarfræðingur heimavistar verður með viðtalstíma á mánudögum frá kl. 15.30 - 16.30 og á fimmtudögum frá kl. 12-13. Hjúkrunarfræðingur er með viðtalstímana í herbergi á skrifstofugangi. Sími hjúkrunarfræðings er 455 1611.
20.08.2015
Minnum íbúa, foreldra og forráðamenn á að hægt er að ná í starfsmann á vakt allan sólarhringinn. Númerið er 899 1602 eða 455 1602.
06.08.2015
Nú styttist í að Verkmenntaskólinn hefji starfsemi sína og heimavistin opni fyrir íbúum skólans.
Heimavistin verður opnuð fyrir innritun þriðjudaginn 18. ágúst frá klukkan 13:00 til 20 og miðvikudaginn 19. ágúst frá klukkan 08:30 til 18.
Stundatöflur nemenda verða afhentar miðvikudaginn 19. ágúst.
Íbúar fá leigusamninga og önnur gögn send viku fyrir upphaf skóla.