Reglur á próftíma taka gildi 8. maí

Næðistími á Heimavistinni hefst 8. maí - Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn. - Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. - Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur. - Tónlist og sjónvörp á herbergjum og á setustofu mega alls ekki valda ónæði. - Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð Hafið samband við starfsmann í vaktsíma 899-1602 ef þið verðið fyrir ónæði. Gangi ykkur vel i prófum og verkefnum. Sýnum öll tillitssemi Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Opið fyrir umsóknir um heimavist fyrir næsta skólaár 2025-2026 til 10. júní

Nú er hægt að sækja um heimavist fyrir skólaárið 2025-2026. Sótt er um á heimasíðunni - Umsókn um heimavist. Þegar búið er að fá staðfestingar um skólavist þá verður haft samband við umsækjendur. Bendum á að þeir sem eru þegar íbúar á heimavistinni þurfa að sækja um aftur fyrir næsta skólaár. Opið er fyrir umsóknir á heimavist til 10. júní.

Annarlok og námsmatsdagar framundan

Um miðjan maí hefst námsmat í báðum skólum og næðistími tekur gildi í vikunni þar á undan. Varðandi lokun í vor þá er það dagsetning á húsaleigusamning sem segir til um lokadagsetningu hjá viðkomandi íbúa. 22. maí er síðasti leigudagur VMA íbúa. 28. maí er síðasti leigudagur MA íbúa.

Páskafrí - Heimavistin lokar kl. 12:00 laugardaginn 12. apríl

Senn líður að páskafríi íbúa en báðir framhaldsskólarnir MA og VMA eru með síðasta kennsludag fyrir páska föstudaginn 11. apríl. Heimavistin lokar kl. 12 á hádegi laugardaginn 12. apríl. Opnum aftur eftir páskafrí mánudaginn 21. apríl, annan í páskum kl. 12.

Páskabingó heimavistarráðs þriðjudaginn 8. apríl

Páskabingó Heimavistarráðs verður haldið þriðjudagskvöldið 8. apríl kl. 20 á setustofunni. Fullt af veglegum vinningum í boði og allir íbúar hvattir til að taka þátt. 🐤🐣

GETTU BETUR sýnt í beinni útsendingu á Setustofunni í kvöld kl 20:00

Úrslitaviðureignin fer fram í kvöld fimmtudaginn 27. mars. Síðast komst MA í úrslit árið 2008! Það er því eðlilega mikil spenna fyrir kvöldinu. GETTU BETUR sýnt í beinni útsendingu á Setustofunni í kvöld, fimmtudaginn 27. mars. Mætið stundvíslega, viðureign MA-MH hefst kl 20:00. Keppendurnir eru öll íbúar á Heimavistinni - hvetjum okkar fólk áfram til dáða! Í liðinu eru: Kjartan Valur, Árni Stefán og Sólveig Erla.

Óskilamunir í þvottahúsinu - vinsamlegast skoðið

Mjög mikilvægt er að merkja þvottinn sinn vel - og það gæti þurft að skrifa ofan í það sem merkt var fyrr í vetur svo fatnaðurinn komist í rétt hólf. Nokkuð er um að ómerktur eða illa merktur fatnaður hafi verið settur í þvott og því ekki hægt að koma til skila í þvottaskápana. Hægt er að merkja þvottinn hjá starfsmönnum í þvottahúsinu.

Ársfundur Lundar 2024

Páskafrí og Heimavistin lokuð

Senn líður að páskafríi íbúa en báðir framhaldsskólarnir MA og VMA eru með síðasta kennsludag fyrir páska föstudaginn 11. apríl. Heimavistin lokar kl. 12 á hádegi laugardaginn 12. apríl. Opnum aftur eftir páskafrí mánudaginn 21. apríl, annan í páskum kl. 12. Varðandi lokun í vor þá er það dagsetning á húsaleigusamning sem segir til um lokadagsetningu hjá viðkomandi íbúa. 22. maí er síðasti leigudagur VMA íbúa. 28. maí er síðasti leigudagur MA íbúa.

Nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga þegar farið er heim í vetrarfrí

Kæru íbúar! Áður en þið farið heim vinsamlegast munið að: - Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur. - Fara með allt rusl af herbergjum út í gám. - Slökkva á rafmagnstækjum (nema ísskáp) og ljósum. - Tæma ísskáp og örbylgjuofn. - Loka gluggum. - Stilla ofna á 3. - Skrá brottför í heimferðaskráningu á heimasíðunni. Muna að kíkja í þvottahúsið og tæma þvottahólfið.